Leita í fréttum mbl.is

Fćrsluflokkur: Tónlist

Andrea Bocelli

Ohhhh....... ég er ennţá eins og í hálfgerđri vímu síđan í gćrkvöldi. Fór á magnađa tónleika međ Andrea Bocelli í Egilshöll. Salurinn nćstum smekkfullur. Viđ létum ţađ ekki aftra okkur ađ viđ ţurftum ađ sitja nćstum aftast enda ekki viđ öđru ađ búast ţegar mađur kaupir miđa daginn fyrir tónleikana. Andrea tók ţarna nokkuđ klassíska stefnu á tónleikana en söng svo nokkur vel valin "gömul" lög í endann.

Honum til halds og trausts var Tékkneska sinfónían, sem stóđ sig frábćrlega, sem og ţau Daniela Bruera sópransöngkona og Gianfranco Montresor baritón. Söngkonan var ţó sérstaklega skemmtileg, hún hristi heldur betur upp í eyrnamergnum hjá manni á stundum.

Ég var alla tónleikana ađ bíđa eftir ţví ađ hann myndi taka uppáhaldslagiđ mitt í endann, Caruso, en ég var víst ekki svo heppin. Ţess í stađ voru uppklappslögin, O sole mio, The prayer og Time to say goodbye. Tónleikarnir voru í hćsta gćđaflokki. Bćđi kallinn sjálfur og hljómsveitin alveg frábćr. Uppáhaldslög kvöldsins fannst mér vera Torna a Surriento, Mamma og Granada auk ţess sem La traviata Brindisi var mjög flottur dúett. Ég get ekki taliđ upp skiptin í gćr ţar sem gćsahúđin hríslađist alveg um mig.

Ég hefđi viljađ sjá meira af lögunum sem hann varđ frćgur fyrir, öll lögin sem ég var látin lćra utan ađ af kennaranum mínum úti á Ítalíu. Henni fannst svo mikilvćgt ađ ég lćrđi um ástríđur og menningu Ítala og lét mig ţví lćra gömlu ítölsku ástarlögin í hans flutningi. Ég á ennţá geisladiskinn sem hún gaf mér međ honum ađ kveđjugjöf en hann hefur veriđ gjörsamlega spilađur í tćtlur síđan ţá.

 


Höfundur

Anna Heiða Gunnarsdóttir
Hér er stuđ, hér er fjör... hvađ er um ađ vera?
Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband