Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2007

Hvernig á að falla á prófi:

1. Taktu með þér kodda. Leggðu þig þangað til svona 5mín eru eftir af prófinu, öskraðu þá.."ahhhllllveg rétt, prófið var í dag!!"

2. Fáðu eintak af prófinu, hlauptu svo út úr stofuni öskrandi "loksins!! loksins!!"

3. Ef þetta er stærðfræðipróf, svaraðu i löngum setningum... ef þetta er ritgerðarpróf, svaraðu í tölum

4. Gerðu pappírsskutlu úr prófinu og miðaðu á kennarann

5. Talaðu alla leið í gegnum prófið! Lestu spurningarnar upphátt og farðu svo að rífast við sjálfan þig hvert rétta svarið skyldi vera. Ef þú ert beðin um að hætta, segðu "jújú, og þú getur bara heyrt mig hugsa" .....talaðu svo um hvað kennarinn er mikið fíbbl.

6. Taktu með klappstýrur með þér.

7. Eftir svona 5mín af prófinu... kallaðu þá á kennarann "hvað er þetta?? ég hef mætt í tíma alla önnina og ég skil ekkert í þessu!!! og hver ert þú eiginlega?!?!

8. Taktu með þér GameBoy tölvu.... spilaðu með volume-ið í botni

9. Neitaðu að svara spurningum... t.d. ég neita að svara þessari spurningu því hún skarðast á við trúarbrögð mín!!

10. Taktu með gæludýr!

11. Hlauptu inní stofuna þegar prófið er rétt byrjað... segðu við kennarann "þeir fundu mig... ég verð að flyja land!" og hlauptu út aftur!

12. Eftir svona 5mín af prófinu, stattu upp, rífðu það niður í pínulitla búta og hentu uppí loftið og öskraðu GLEÐILEG JÓL!! ....biddu kennarann um annað próf og segðu að þú hafir tynt hinu...

13. Skrifaðu svörin með vaxlitum eða vatnsmálningu

14. Mættu í prófið í sandölum, baðslopp og handklæði á hausnum. (Personal favourite!!!!!)

15. Fáðu alltíeinu kast af Tourette's Syndrome í miðju prófi...

16. Svaraðu prófinu á einhverju öðru tungumáli! ... ef þú kannt ekki annað tungumál, gerðu þitt eigið tungumál!!

17. Hentu drasli í kennarann þegar hann er ekki að horfa... bentu svo á sessunaut þinn!

18. Strax og kennarinn lætur þig fá prófið... éttu það!

19. Komdu með heilt kvikmyndatökulið með þér og segðu að þú viljir taka prófið upp!

20. Á 5 mínútna fresti, taktu saman allt draslið þitt, sestu annarstaðar og heldur áfram að taka prófið

21. Strikaðu yfir bæði spurningarnar og svörin með svörtum túss!

22. Fáðu prófið, eftir tíu mínútur, dúndraðu prófinu í borðið þitt, öskraðu "til andskotans með þetta próf!!" og labbaðu hetjulega út!

23. Fáðu fólk til að mótmæla prófinu... (með spjöldum og alles)

24. Mættu algjörlega haugafullur!!! (haugafullur: sumsé miklar líkur að þú ælir)

25. Vertu endalaust að segja hversu sexí kennarinn er þennan daginn!

26. Taktu með þér vatnsbyssu

27. Mættu klæddur í riddarabúning! ....með sverð og skjöld!

28. Þegar þú labbar inn... kvartaðu yfir hitanum... strippaðu

29. Reyndu að fá sessunautana til að gera "bylgju"

30. Mættu með hljóðfæri! segðu að það hjálpi þér að hugsa!

Fyrsta próf

Stefnir allt í fyrsta próf vorsins síðar í dag. Verklegt próf í manual therapy á hrygg. Stress og kvíðahnútur farinn að gera vart við sig, óeðlilegar margar pissuferðir á klósettið, andardrátturinn farinn að grynnast, spennulestur og æst yfirferð byrjuð.

Ohhhh... alveg yndislegt eða hvað?

Kannski ef ekki væri svo að bekkjarsystkini mín eru búin að þjösnast svo á bakinu á mér seinustu daga að ég á erfitt með gang og setu. Greinilega stórefnilegir meðferðaraðilar eða hvað?????


Já það var svo sem auðvitað...

Ég trúi því staðfast að þessi aukning á sölu hjá H&M sé okkur mæðgum að þakka. Við höfum sennilega eytt nokkrum hundruðum þúsunda í þessari verslun í seinasta mánuði og því kemur fréttin mér ekki á óvart....  Ég tek þetta því algjörlega á mig :)
mbl.is Mikil sala hjá H&M
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Handbendi djöfulsins

Sem endranær var ég með krakkana mína í frjálsum á æfingu á fimmtudaginn. Ég var með nýjan hóp af krökkum sem var einungis skipaður af tuttugu stykkjum af 7 ára strákum. Það er óhætt að segja að það var fjör Pinch Ærslagangurinn mikill og svona eins og vera ber. Krakkarnir sitja allir fyrir framan mig og ég er að segja þeim frá húsreglum og svona... Ég minnist á þagnarmerkið sem er útrétt hönd með ýmsum útfærslum. Sumir strákanna vildu hafa það á einn hátt og aðrir annan. Allt í góðu... ég fer svo að sýna ýmsar útfærslur en segi þeim að þetta þýði allt það sama hvernig sem ég geri það... hvort sem ég er með lokaðan hnefa eða einn putta úti eða hvað. Ein af þessum handbendingum var svo rokkaramerkið... eða kýr-merkið eins og ég kýs að kalla það:

 

rock´nroll

 

Þá segir einn strákurinn mjög alvarlegur:

Þetta er alveg bannað, þetta þýðir að þú sért að fucka guði!!!!!

 

Ég hef bara aldrei vitað annað eins.... við sprungum öll úr hlátri sem vorum þarna.... hvar læra börn svona hluti spyr ég nú bara?


Vettlingar = Skór

Pían er komin heim W00t Við mæðgur skemmtum okkur stórvel í útlöndum. Mikið verslað.... og meira.... og meira.... og mikið meira verslað! Þið vitið hvernig ég er.. ég kann mér ekki hóf :)

Við lentum annars snemma á páskadagsmorgun, en Sísí vinkona hélt upp á afmælið á sunnudagskvöldið (páskadag....). Ágætlega mætt en mannskapurinn frekar slappur. Kannski að páskaegginn hafi ekki rennt nógu ljúflega niður GetLost En allavegna við Sísí, Árni og félagi hans skelltum okkur í fjörið. Smá dans og stuð, ekkert nema gott um það að segja. Um klukkan fimm var ég orðin ansi þreytt enda langur dagur, erfitt að fá leigubíl, ákvað þá í stundarbrjálæði .... að það væri kannski sniðugt að labba bara heim á 10 cm hælum !!!!!! margir vildu fá að labba með mér á heimleiðinni en það er önnur saga... allavegna til að gera langa sögu stutta þá endaði förin á því að þegar ég var komin fram hjá tjörninni gat ég ekki meira og var alveg að drepast í fótunum. Sem betur fer var ég með þykka 66° Norður vettlinga á höndunum (ég veit sniðug :)... ég stoppaði í andartak og velti fyrir mér hvað væri hægt að gera í stöðunni.....setti saman tvo og tvo... setti vettlingana á fæturna og hljóp heim Grin Ég er ennþá að hlæja að þessu tveim dögum seinna....

Mestu áhyggjurnar hafði ég af því að e-r myndi keyra fram hjá mér með þumalfingurna á vettlingunum mínum standandi út í loftið og fara að hlæja að mér...

Ég mæli annars með þessu fyrir allar ungar stúlkur sem sökum ölæðis halda að það sé sniðugt að labba heim á hælaskóm.


Cheers

Það er stuð í Boston. Við mæðgur erum búnar að stunda búðirnar stíft fyrstu dagana. Ég er búin með allan peninginn minn og gott það eftir fjóra daga... vika eftir! Hélt samt að það væri ódýrara hérna heldur en það er. Samt sem áður ódýrara heldur en heima, gott það. Í staðinn fyrir að hugsa hvað ég er að eyða hugsa ég hvað ég er að spara mikið... ber allt saman við það sem ég hefði borgað fyrir það heima. Ef við horfum þannig á málin er ég ábyggilega búin að spara 100 þús... og gott betur. Það segir kannski hvað ég er búin að eyða miklu Whistling Hélt að ég gæti fengið íþróttaföt á mun lægra verði en þau eru víst allstaðar dýr. Við mæðgur klúðruðum e-ð pöntuninni á hótelinu hérna úti... sofum allar saman í einu stóru rúmi. Heldur þröngt á þingi... sérstaklega þegar mamma og Beta hrjóta eins og búrhvalir og prumpa eins og eftir rúsínumaraþonát... ég held ég hafi aldrei orðið vitni að öðru eins. Hótelið samt mjög fínt, ábyggilega eitt það fínasta í bænum. Anddyrið eitt það magnaðasta sem ég hef séð. Loftið allt útskorið í við og kristall í öllu. E-ð sem er mömmu að skapi...

Annars er margt merkilegt að sjá í Boston... en við kannski ekki búin að sjá það!

Fórum samt á upprunalega Cheers staðinn.... Keyptum jólakúlu með Cheers merkinu á 10 dollara.. það verður án efa vinsælasta jólaskrautið næstu jól. New York er málið á morgun... förum í rútu kl. 6 í fyrramálið. Ég hlakka til... hef lengi langað til að fara til NY. Held samt að það væri meira stuð í góðra vina hóp eða með kærasta heldur en með mömmu og systu. Ég læt mér það þó gott heita í bili. Bið að heilsa í bili... sé ykkur öll á páskadag geri ég ráð fyrir :)

 


Höfundur

Anna Heiða Gunnarsdóttir
Hér er stuð, hér er fjör... hvað er um að vera?
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband