Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júní 2006

Are we there yet......?

Jæja þá er ég komin aftur á Hólminn... verð að segja að það er bara alveg ágætt! Reykjavík er stórlega ofmetin.. maður gerir sér ekki grein fyrir því fyrr en maður fer aðeins út fyrir hana. Það er alveg yndislega frábært að vera í rólegheitunum úti á landi. Við Gunni erum að spá í að fara að veiða í kvöld eftir vinnu... svona um miðnætti! Þetta er e-ð sem maður hefði aldrei gert byggjum við í Reykjavík. Annars er Gunni að fá dellu fyrir öllu núna... búinn að vera að spá í að fá sér snjósleða, sjókött, nýja byssu, veiðistöng og e-u fullt fleiru... ég sagði hinsvegar stopp um daginn þegar hann var farinn að spá í að fá sér hest!!...  Er fullviss um að það hefði ekki alveg gengið! Stundum hugsar hann hlutina ekki til enda í þessum hugsanaóveðrum (i.e. brain-storming) sínum! Þá getur nú verið gott að eiga mig að...

 Annars gerðist ekki margt í Reykjavík.. systir hans Gunna ekki ennþá búin að eiga... við eiginlega vöktuðum hana á meðan við vorum í bænum... minnti mig á Bart Simpson... are we there yet, are we there yet, are we there yet, are we there yet, are we there yet, are we there yet, are we there yet, are we there yet!

Ég ætlaði líka að kaupa mér e-r rosa flott föt... það er óhætt að segja að ég hafi ekki fundið mér neitt! Keypti mér reyndar nýja hlaupaskó af bráðri nauðsyn þar sem my monster truck littla tá var alveg búin að brjóta sér leið í gegnum skóna mína! Sé fram á að þurfa að endurnýja fataskápinn erlendis í haust...

 Fór líka í sjúkraþjálfun... fékk leyfi til að prófa mig áfram í skokkinu... varð aðeins of gráðug og skokkaði í 10 mín..... hægri rasskinnin á mér var greinilega ekki sátt við það og fór í kleinu... þannig að skokkið verður víst að bíða aðeins lengur! Óþolandi samt hvernig svona sjúkraþjálfarar tala... já bara ef þú treystir þér til þess... já þú verður bara að finna það sjálf... ég get bara ekki sagt neitt um það... þú verður bara að spila það eftir því hvernig þér líður........ og so on! Ég ætla ekki að vera svona sjúkraþjálfari!... ég ætla bara að gefa hrein svör... já eða nei! Annað hvort má maður gera hlutina eða ekki! Fólk sem er búið að vera ofvirkt alla ævi og alltaf e-ð að er hætt að skynja sársauka eins og aðrir... það er bara staðreynd!

 Annars er ég að vinna á 2-10 vöktum núna sem er algjör moxxxx fuxxxx! Það var huges hópur af frönskum og þýskum túristum hérna áðan og ég alein í búllunni... reyndi af veikum mætti að tala frönsku... skildi þó reyndar merkilega mikið af ruglinu í þeim.. en það er samt ótrúlegt hvað maður er fljótur að gleyma tungumálakunnáttunni sinni... gat ómögulega munað hvað kanína var á frönsku þannig að ég fór bara í actionary hérna á miðju gólfinu og fór að hoppa og leika kanínu... þau héldu reyndar að ég væri hundur fyrst en það komst samt til skila :) Ég er samt líka alltaf þannig að það er annaðhvort bara ítalskan eða franskan sem hefur yfirhöndina og þessa stundina er það ítalskan.... þannig að alltaf ef ég ætla að segja e-ð á frönsku þá get ég ómögulega hætt að hugsa á ítölsku!

Kveð annars í bili... og minni á færeyska daga á Ólafsvík næstu helgi ef e-m langar... ég er game í djamm ef e-r vill :)


Stykkishólmspósturinn..

Gleðilega þjóðhátíð vinir nær og fjær... 

Skrítið að í gær þegar e-r sagði í sjónvarpinu ".......og gleðilega þjáðhátíð"...  þá hugsaði ég: Þessi er nú e-ð rugl... það er engin þjóðhátíð í dag... það er 17.júní....  Þögull sem gröfin

Ég er annars bara í vinnunni núna... það er nú víst bara þannig að þeir sem vinna í ferðaþjónustunni fá aldrei frí. Við sitjum fjögur hérna á skrifstofunni og borum í nef... það er ekkert að gera! Svo á ég bara eftir að vinna í einn dag og þá er ég komin í vikufrí... þetta er búið að vera algjör drullupollur að vinna svona tvær vikur samfleytt... framkvæmdagleðin er komin niður við frostamark og ef ég er beðin um að gera e-ð þá hvæsi ég bara á viðkomandi. Ég fer líka að verða fegin að komast í sjúkraþjálfun.. er búin að vera sæmileg svona almennt séð... er að spá í að reyna pumpa kallinn í að fá að prófa að skokka og labba til skiptis. Athuga hvað hann segir með það, þó að ég sé reyndar nokkuð viss um að hann leyfi það ekki!

Var að hugsa til baka um daginn og þá fattaði ég að ég er ekki búin að skokka í að verða fimm mánuði núna... sem er alveg tveim mánuðum lengra en þegar ég t.d. álagsbraut sköflunginn á mér... þannig að þetta er alveg lengsta skokkpása LÍFS MÍNS..... Enda er ég að verða komin með alveg nóg af þessari vitleysu.. er farin að velta því fyrir mér hvort að það sé virkilega þess virði að vera í íþróttum ef maður endar sem e-r krypplingur um þrítugt... Í HJÓLASTÓL! Það verður samt alltaf þá aftan í hausnum á manni hvað ef ég hefði haldið áfram.... hvað hefði maður getað afrekað! Fyrir utan það líka hvað þetta er skemmtilegt. Allavegna þá verða frjálsarnar að bíða um sinn á meðan bakið er að gróa. Ég var líka að fatta að ég hef ekki náð heilu tímabili síðan ég var fimmtán ára....geri aðrir betur!

Ég fer að verða soldið spennt fyrir því að byrja í skólanum... er komin með nóg af því að vinna endalaust! Svo er líka alveg ótrúlegt hvernig mér hefur tekist að eignast svo til engan pening???? Ég bara skil þetta ekki!!!!!!


Byssuóður veðurfréttamaður.....

Þetta sumar er búið að vera alveg úber lélegt... rigning uppá hvern einasta dag. Ég bara man ekki eftir öðru eins. Vá hvað ég vorkenni greyið unglingunum að þurfa að vinna úti í þessu veðri. Ég svo sem þekki það af eigin raun.... vann í mörg sumur í kirkjugarðinum. En þar sem að sálarástand mitt er eitthvað svo nátengt veðrinu núna þá er ég stanslaust þreytt. Ég bara get ekki vaknað... ég snooza alltaf svona fimm sinnum... og bíð alltaf alveg fram á seinustu stundu með að fara á fætur og er þar af leiðandi alltaf frekar úldin og í illa samsettum fötum og með úfið hár... og ég sem í bjartsýni minni tók eiginlega bara með mér e-r sumarföt hingað... hélt að sumarið væri nú á næsta leyti.... en nei....

Þar af leiðandi er ég að finna sjálfa mig í undarlegum aðstæðum.. ég er komin með þráhyggju fyrir því að skoða veðurfréttirnar!!!! Ég hugsa að ég fari svona að meðaltali 10 sinnum á dag að skoða mbl.is og vedur.is... alltaf með bjartsýnina að vopni.. nú skal það sko gerast... nú kemur sól! En það bara gerist ekki og í hvert skipti missi ég alveg endanlega vonina á því að það komi e-n tímann e-ð sumar hérna.... hvað ef að núna er bara sumarið þar sem að enginn golfstraumur kemur til Íslands og það verður bara endalaus lægð og suðvestanátt og strekkingur með vaxandi vindi... og bara rigning í allt sumar og svo kemur bara vetur í ágúst..... maður veit aldrei.....það gæti alveg gerst! 

Ég var annars að hugsa í gær hvað það er ofboðslega langt síðan það var e-ð almennilegt eldgos á Íslandi.. það er ekkert fútt í þessu hjá okkur! Það væri soldið spennó ef Hekla kæmi bara með risagos eða Katla eða e-r af þessum stóru fjöllum... og allir að koma til Íslands til að skoða og mega action í gangi.... ekki það að ég vilji að e-r meiði sig eða svoleiðis.. ég held að það sé bara kominn tími til að Ísland fari að standa undir nafni og geri e-ð til að koma okkur í fréttirnar erlendis fyrir e-ð annað en fjármálabrask.

 Ég er annars alltaf að gera mitt besta til að skoða umhverfið á Snæfellsnesinu.. nafla alheimsins.. menningarsvæðið.. eins og yfirmaður minn segir. Fórum í Kolgrafarfjörð í gærkvöldi.. Gunni plataði mig til þess að prófa að skjóta... held ég geri það varla aftur. Ég datt næstum því aftur þegar byssan þrykktist í öxlina á mér... fattaði svo ekki að maður má víst ekki sleppa byssunni við svoleiðis högg... Gunni varð hræddur um að ég mundi óvart skjóta hann. Það gerðist nú samt sem betur fer ekki :) Fékk líka þessa svakalegu hellu fyrir eyrun.. var með hana í dágóðan tíma á eftir! Við skelltum okkur svo að labba upp að e-m foss þarna í firðinum. Ottó greyið vældi eins og kerling.. þorði varla yfir.. komum honum þó á endanum, kannski ekki skrítið.... strákurinn að synda í fyrsta skipti. Ég var rosa stolt af honum, gæti trúað að þetta sé svipuð tilfinning og að sjá barnið sitt labba í fyrsta skipti... mjög tilfinningaþrungið! Við ákváðum svo að henda honum ofan í e-n sæmilega lítinn hyl þarna á bakaleiðinni... héldum að hann yrði kannski hræddur en strákurinn bara stóð kyrr.. held að hann hafi kannski haldið að hann ætti að fara í bað þarna! Æ hann er e-ð svo vitlaus greyið...  Létum hann svo hlaupa á eftir bílnum dágóðan spotta eftir gönguna... litla greyið var farið að froðufella eins og óður maður og það var farið að blæða úr loppunum á honum eftir það Skömmustulegur litla greyið mitt var alveg búið á því.. þegar hann kom heim borðaði hann tvær dollur af hundamat á innan við tveim mínútum... hlýtur að vera e-s konar met hjá hundi. Svalur


Heilhveitis ananas

Jæja.. þá fer að styttast í bæjarrúnt. Enda kominn tími til.. ég er farin að sakna Reykjavíkur!  Það er eiginlega soldið skrítið að mér líður eiginlega frekar eins og sé í útlöndum heldur en á Íslandi þar sem ég er umkringd útlendingum allan daginn og er alltaf að skrifa e-mail á ensku. Þannig að koma heim til mömmu er eins og að koma heim frá útlöndum. .. sem er alltaf ánægjulegt. Það er nú samt ótrúlegt hvað maður hittir mikið af fólki hérna.. eins og bara í gær þá var kærasti hennar Eyrúnar hérna og í seinustu viku var öll strollan af ættingjum mínum hérna og ég er alltaf að hitta e-ð fólk sem ég þekki. Ég er annars frekar löt að æfa hérna... en fékk smá áminningu í gær þegar tvær konur á skrifstofunni hjá mér spurðu mig hvort ég væri nokkuð ólétt....... Ég fór í gymmið á eftir og tók vel á því svo ekki sé meira sagt. !!!??! Ég ætla líka að taka World class með trompi þessa viku sem ég verð í bænum ef e-r vill koma með?..

Ég er annars farin að pæla í að kíkja e-ð út í haust... ef sumarið verður svona áfram þá er ekkert vit í því að hanga hérna áfram.. ef e-r rekst á e-ð gott tilboð þá er ég til!!!?!!.. Ég er annars með frekar limited budget.. ef maður á að kaupa e-a íbúð í haust þá er ekkert vit í því að fara í rándýra utanlandsferð.. því miður... Taíland verður bara að bíða lengur eftir mér!

Ottó er annars bara hress... fyrir utan það að hann var e-ð reiður við mig um daginn af því ég skildi hann eftir einan heima soldið lengi og drengurinn tók sig til og meig á alla skóna mína..... sem voru bæ the wei... uppi í skógrind! Hann var líka soldið furðulegur í nótt.. vaknaði með andköfum svona um 4 hljóp uppá eldhúsborð og byrjaði að gelta eins og óður maður... veit ekki alveg hvað hljóp í hann??!!!? Hann er samt töffari...

Ég er með góða reglu sem mætur kennari í MR kenndi mér.. í staðinn fyrir að segja helvítis andskotans...þá segir maður heilhveitis ananas... góð regla ef maður er með krakka nálægt :)

Annars velkomin heim Berglind ef þú sérð þetta :)


Sveitakonan

Jæja..  félagar sunnan og norðan Vatnaleiðar...ég ætla að gera heiðarlega tilraun til þess að halda úti auglýsingasíðu um líf mitt... og þá sérstaklega fyrir þá sem eru sunnan hennar. Fyrir þá sem ekki vita þá er Fífí flutt um stundarsakir vestur á Stykkishólm. Þeir sem eiga leið þar um eru ávallt velkomnir í kaffi og með því... Fífí er að vinna á Sæferðum..... Sæferðir eru með báta... Fífí verður mjög sjóveik... Fífí líkar ekki að sigla á báta. Samt þarf Fífí að sigla stundum í vinnunni... Fífí fer stundum í gymmið... í gymminu á Stykkishólmi eru 8 tæki... þar sem Fífí er vön að æfa í Reykjavík eru 8000 tæki...  Annars er fínt að vera á Stykkishólmi.. Fífí getur farið daglega á kajak, á hestbak, golf, fuglaskoðunarferðir, sund og fjallgöngur. Fífí á hund sem heitir Ottó og er með henni á Stykkishólmi. Hann er algjör pjakkur og nýbúinn að fá eistu þannig að honum finnst hann algjör foli og strýkur stundum  til að spjalla við píurnar í bænum. Ottó finnst líka gaman á Stykkishólmi. Fífí á vindsæng og kodda ef vinkonur hennar vilja koma í heimsókn.

Höfundur

Anna Heiða Gunnarsdóttir
Hér er stuð, hér er fjör... hvað er um að vera?
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband