Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Menning og listir

Tónleikar

Tónleikar
Til styrktar og heiðurs Þuríði Örnu Óskarsdóttur í Bústaðarkirkju Miðvikudaginn 8. nóvember kl 20
.

Fram koma
Stebbi og Eyfi, Regína Ósk, Garðar Örn Hinriksson, Signý Sæmundsdóttir, Jóhann Friðgeir, Hanna Þóra og Ólöf Inga Guðbrandsdætur.

Ásamt
Guðmundi Sigurðssyni, Vilhelmínu Ólafsdóttur, Matthíasi Baldurssyni og Guðmundi S Sveinssyni

Kynnir verður
Anna Björk Birgisdóttir

Aðgangseyrir 2000 kr
Allt fé sem safnast á tónleikunum rennur óskert til Þuríðar Örnu og fjölskyldu hennar.


ALLIR AÐ MÆTABrosandi

Álið er málið, skál í ál.....

Ég verð bara að byrja að segja váááááá....... hvað ég skemmti mér vel um helgina stelpur. Það var bara allt frábært og fór fram úr mínum björtustu vonum..... maturinn var æði (fórum á Austur-Indíafjelagið sem er b.t.w. með hópmatseðil sem virkar eins og hlaðborð) og partýið hjá Hrefnu var stórskemmtilegt. Sérstaklega gaman að sjá Berglindi sem ég hef ekki séð síðan hún kom heim frá sléttlandi. Það er alltaf hægt að treysta á það að hún haldi uppi stuðinu. Ég þurfti reyndar að fara heldur snemma heim úr bænum vegna ölvunar og er enn í þynnkunni (á mánudag????.....skil þetta ekki!!) og greyið Gunni missti af laxveiðiferðinni sinni í gær af því ég var ennþá drukkin þegar ég vaknaði á hádegi Ullandi og gat ekki keyrt vestur fyrr en mamma gaf mér tvöfaldan skammt af ís með jarðaberjum og súkkulaði. og takk fyrir gjafirnar stelpur, safapressan sló í gegn sérstaklega hjá Gunna, hann var eins og óður maður að pressa safa í morgun, og staupglösin hennar Kolbrúnar úr áli voru frumleg. á pakkanum stóð: til hamingju með afmælið Anna, álið er málið, skál í ál.... Alltaf jafn skemmtileg hún Kolbrún.


Höfundur

Anna Heiða Gunnarsdóttir
Hér er stuð, hér er fjör... hvað er um að vera?
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband