17.7.2006 | 17:33
Álið er málið, skál í ál.....
Ég verð bara að byrja að segja váááááá....... hvað ég skemmti mér vel um helgina stelpur. Það var bara allt frábært og fór fram úr mínum björtustu vonum..... maturinn var æði (fórum á Austur-Indíafjelagið sem er b.t.w. með hópmatseðil sem virkar eins og hlaðborð) og partýið hjá Hrefnu var stórskemmtilegt. Sérstaklega gaman að sjá Berglindi sem ég hef ekki séð síðan hún kom heim frá sléttlandi. Það er alltaf hægt að treysta á það að hún haldi uppi stuðinu. Ég þurfti reyndar að fara heldur snemma heim úr bænum vegna ölvunar og er enn í þynnkunni (á mánudag????.....skil þetta ekki!!) og greyið Gunni missti af laxveiðiferðinni sinni í gær af því ég var ennþá drukkin þegar ég vaknaði á hádegi og gat ekki keyrt vestur fyrr en mamma gaf mér tvöfaldan skammt af ís með jarðaberjum og súkkulaði. og takk fyrir gjafirnar stelpur, safapressan sló í gegn sérstaklega hjá Gunna, hann var eins og óður maður að pressa safa í morgun, og staupglösin hennar Kolbrúnar úr áli voru frumleg. á pakkanum stóð: til hamingju með afmælið Anna, álið er málið, skál í ál.... Alltaf jafn skemmtileg hún Kolbrún.
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Eldri færslur
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
Athugasemdir
Ég veit enda læt ég engan fá það óþvegið!!
Kolbrún (IP-tala skráð) 18.7.2006 kl. 00:14
Já...takk sömuleiðis fyrir mig...fannst ömó að komast ekki með ykkur á djammið, en það verður víst að bíða betri tíma :)
Harpa (IP-tala skráð) 18.7.2006 kl. 08:32
takk fyrir kvöldið, þetta var algjört mega :) og.... til lukku með daginn elsku stelpa! kv. laufey
laufey (IP-tala skráð) 19.7.2006 kl. 00:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.