11.7.2007 | 14:44
Trúlofun....
Það er svo yndislega gaman að segja frá því að Björg góðvinkona mín var að trúlofa sig honum Gunnari um helgina á þeim góða degi 07.07.07. Mikil hamingja er með ráðahaginn og óska ég þess að sambandið verði langlíft og gjöfult af fullt af börnum , því það þarf svo sannarlega fleiri manneskjur eins og Björgu og Gunnar í þennan heim. Annað verra er þó að fara að missa hana Björgu mína erlendis bráðlega í 6 ár til náms. Það fer að týnast úr vinahópnum smátt og smátt á næstu árum þar sem þær eru svo margar að fara erlendis í áframhaldandi nám. Það kemur nú þó líka að því að ég fari þannig að ég örvænti ekki. Mesta shokkið verður nú þó sennilega þegar stelpurnar í læknisfræðinni fara allar erlendis á sama tíma. Þá verður ansi brátt í búi. Þá verður líka samt þó gaman að geta farið út um allan heim og geta átt samastað hjá góðum vinkonum.
Ég ætla að leyfa mér í ljósi nýskeðinna atburða að áætla að ekki líði langt þangað til að af næstu trúlofun verði í vinahópnum..... Hver skyldi það verða????
Á sama degi um helgina hélt önnur góðvinkona, hún Laufey upp á 25 ára afmæli sitt sem og innflutningspartý. Það var góð mæting og mikið stuð og mikið drukkið af Cosmpolitan. Einum of mikið hjá sumum kannski.. Til hamingju annars Laufey mín með nýja og flotta íbúð :) Við fórum svo í bæinn eftir afmælið í góðum fílíng og dönsuðum ákaft, alveg inn að beini jafnvel.
Ég á annars afmæli núna eftir rétt rúma viku, þann 19.júlí. Í ljósi þess að ég verð í gönguferð alla helgina á eftir þá var ég að spá hvort þið vinkonurnar vilduð ekki bara kíkja í kaffi til mín kvöldið 19. þá?? eða jafnvel á sunnudeginum, þann 22.júlí???? Segið mér endilega hvor dagurinn hentar betur eða hvort þið komist yfirhöfuð.
Arrivaderci e ci vediamo píú doppo...
Eldri færslur
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
Athugasemdir
Ég kemst líklega frekar 22. en 19. gæti samt gengið líka.
Stórt knús frá mér fyrir huggulegheitin ;-)
Björg (IP-tala skráð) 13.7.2007 kl. 09:48
Kem þann daginn sem verður valinn en sunnudagurinn er þó betri þrátt fyrir að við verðum nú e.t.v. lúnar eftir helgina :)
Berglind (IP-tala skráð) 13.7.2007 kl. 15:04
Sammála, sunnudagur betri hjá mér líka:) en ég kemst samt held ég líka 19. Muna samt hittingur hjá berglindi 17júlí:) ....kynningin
Oddný (IP-tala skráð) 13.7.2007 kl. 15:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.