15.4.2008 | 22:56
Sumarið er á næsta leyti...
Ég vil bara minna lýðinn á að það eru einungis 3 vikur þangað til ég verð komin í ylinn og sólina á Ítalíu. Þar mun ég dvelja í rúman mánuð ásamt spúsa mínum í góðu yfirlæti móður minnar sem býr við Garda vatn. Eitthvað er á dagskránni að kíkja líka á frönsku ríveríuna og ferðast um gervalla Ítalíu. Er hægt að starta sumrinu betur?? Getur bara ekki verið... Mér hefur borist það eitthvað til eyrna að við fáum hugsanlega góða gesti í heimsókn Þessi ferð er algjörlega að fara að halda í mér lífinu í gegnum verkefnaflóðið sem við erum í núna og prófin sem eru á næsta leyti. Núna er bara eins gott að evran fari að lækka svo ég geti keypt mér e-ð af viti þarna úti....
Ef þið hafið ekki komið að Garda vatninu þá gefur þessi mynd ágætis hugmynd um hvernig útsýnið er af svölunum hjá mömmu.
Eldri færslur
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
Athugasemdir
Váááááá, fallegt ! Gangi þér vel í öllu brjálæðinu ;)
Berglind (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 18:18
Hafðu það gott á Ítalíu Anna mín. Við hér á Sóltúni hlökkum líka verulega mikið til að fá þig til okkar í sumar.
Kv. Nanna Guðný.
Nanna Guðný Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 20.4.2008 kl. 20:53
hæjó
hvenær er aftur meiningin að hrefna og björn hitti á ykkur? ég var að spá hvort ég ætti að reyna að fljúga til ykkar í tvo þrjá daga og hitta á ykkur öll?
liebe gruesse
laufs (IP-tala skráð) 22.4.2008 kl. 13:58
Ég er svo öfundsjúk! Það væri geggjað að kíkja á ykkur en það gerist víst ekki í þetta sinn...
Kata (IP-tala skráð) 27.4.2008 kl. 00:49
Vá hvað það verður æðislegt hjá ykkur :) Pant koma með næst!!
Inga Rós (IP-tala skráð) 2.5.2008 kl. 18:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.