3.11.2008 | 19:46
Hrekkjalómur..
Núna um helgina fóru ég, Gunni og Þórey með krakkana okkar í frjálsum austur á Laugarvatn í æfingabúðir. Mikið gaman og mikið fjör. Allt þar til.....
Á laugardagskvöldið voru krakkarnir með kvöldvöku. Þar var einsöngur, leikrit, dansatriði, söngvaatriði og fjöldasöngur og fleira skemmtilegt á dagskrá. Ekkert nema gott um það að segja. Í lok kvöldvökunnar voru svo ljósin slökkt og krakkarnir sögðu draugasögur upp á gamla mátann. Alveg myrkur og allir sátu í hring á gólfinu. Margar sögurnar voru ansi spúkí. Í lokin stóðst ég svo ekki mátið að gera e-ð skemmtilegt. Ég fór fyrir utan húsið, læddist að gluggunum, setti upp peysuhettuna og lamdi og öskraði á gluggana eins og óð manneskja.... Krakkarnir öskruðu eins og þau ættu lífið að leysa.
Ég hef aldrei heyrt annað eins!!!!!!!
Svo urðu þau svo hrædd að þau fóru bara að gráta.... Þau gátu sum hver ekki sofið um nóttina og voru með myrkfælni á háu stigi. Vona að ég verði ekki til þess að þau fái e-a myrkfælni phóbíur eftir þetta. En skemmtilegt var það þrátt fyrir allt. Langt síðan ég hef hrekkt einhvern. Mæli með hressandi hrekkjum af og til.
Eldri færslur
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
Athugasemdir
Ahahahahahahahahahahahahahahaha!!!! Anna...þú ert svo mikill púki!!
Harpa (IP-tala skráð) 4.11.2008 kl. 16:35
Hahahaha, gaman að vera saman. Þú kannt þetta vinkona ;)
Sísí (IP-tala skráð) 8.11.2008 kl. 17:49
Og ég var ein af þeim sem gat ekki sofnað...... án djóks!!! hehehe
Þórey (IP-tala skráð) 14.11.2008 kl. 23:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.