3.12.2006 | 20:01
nei nei nei nei...
Smá prófskrekkur kominn í mann.. fyrsta prófið er á morgun! Verkleg rafmagnsfræði! Hljómar skemmtilega ekki satt?? Finn að það er kominn skjálfti í hendurnar og öndunin er farin að grynnast.... yndilegur árstími
Hét sjálfri mér því á seinasta ári að ég myndi negla prófin í ár og að ég yrði að berjast við toppinn í staðinn við fallið. Vona að það eigi eftir að standa. Ég er annars ekki frá því að ég hafi orðið svolítið abbó um daginn þegar stelpurnar voru að segja mer frá því hvað þær væru að fara að gera í sumar.. allar að fara til spennandi landa að vinna sem læknar! Velti því þá fyrir mér hvort ég væri ánægð í mínu námi... þó að ég sé ánægð í sjúkraþjálfuninni.. þá er alveg hugsanlegt að ég hefði orðið ánægð í læknisfræðinni! Hefði alveg getað brugðið til beggja átta. Skrítið hvað ákvarðanir sem maður tekur kannski bara á örskotstíma geta haft áhrif á allt líf manns. Mæli annars með því stelpur að við kannski skellum okkur í jólakortagerð eða e-ð dúllerí 16.des... held að það sé laugardagur... ef þið getið???? Gangi ykkur annars vel í prófum vinir nær og fjær
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Eldri færslur
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
Athugasemdir
Það er rétt hjá þér þetta var skyndiákvörðun hjá mér að fara í þetta nám mitt. Er jafnvel að spá í að byrja upp á nýtt við e-ð allt annað. Betra að pæla dáldið í svona hlutum. Annars er ég að fara til Berlínar og þar mun ég eflaust hugsa til þín vinkona, gangi þér vel í prófunum.
Sísí (IP-tala skráð) 3.12.2006 kl. 23:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.