Leita í fréttum mbl.is

Álið er málið, skál í ál.....

Ég verð bara að byrja að segja váááááá....... hvað ég skemmti mér vel um helgina stelpur. Það var bara allt frábært og fór fram úr mínum björtustu vonum..... maturinn var æði (fórum á Austur-Indíafjelagið sem er b.t.w. með hópmatseðil sem virkar eins og hlaðborð) og partýið hjá Hrefnu var stórskemmtilegt. Sérstaklega gaman að sjá Berglindi sem ég hef ekki séð síðan hún kom heim frá sléttlandi. Það er alltaf hægt að treysta á það að hún haldi uppi stuðinu. Ég þurfti reyndar að fara heldur snemma heim úr bænum vegna ölvunar og er enn í þynnkunni (á mánudag????.....skil þetta ekki!!) og greyið Gunni missti af laxveiðiferðinni sinni í gær af því ég var ennþá drukkin þegar ég vaknaði á hádegi Ullandi og gat ekki keyrt vestur fyrr en mamma gaf mér tvöfaldan skammt af ís með jarðaberjum og súkkulaði. og takk fyrir gjafirnar stelpur, safapressan sló í gegn sérstaklega hjá Gunna, hann var eins og óður maður að pressa safa í morgun, og staupglösin hennar Kolbrúnar úr áli voru frumleg. á pakkanum stóð: til hamingju með afmælið Anna, álið er málið, skál í ál.... Alltaf jafn skemmtileg hún Kolbrún.


Ævintýri.......... hver vill????

Ég er að koma í bæinn á morgun ef e-r vill koma að gera e-ð skemmtilegt með mér....????? er til í allt! Annars þá lítur út fyrir að fólk sé ekkert sérlega spennt fyrir afmælinu mínu, Fýldur sem mér auðvitað finnst alveg óskiljanlegt! Ég væri annars geðveikt til í að kíkja e-ð í  bústað um helgina eða fara í e-a ótrúlega skemmtilega útivistarferð eða gera bara e-ð óvenjulegt og skemmtilegt.... hugmyndir vel þegnar?!!! Jafnvel kíkja e-ð út á land.... ef fólk hefur tíma... sem ég reyndar efast stórlega þar sem það eru allir í e-i vaktavinnu núnaÓákveðinn  en jæja það má allavega láta sig dreyma! En ef þið ætlið að leyta að mér á næstu dögum þá verð ég sennilega talsvert í gymminu... ég ætla nefnilega að léttast um 5 kíló fyrir afmælið mitt Hlæjandi


Fólk sem þjáist af fávitahætti

Skellti mér í Ólafsvík eftir vinnu í gær... get ekki sagt annað en að ég hafi verið fegin að þurfa ekki að gista þar! Þvílíkur viðbjóður sem tók á móti manni. Ekkert nema fullar 15 ára stelpur með kúkinn uppá bak. Það sást varla hræða þarna sem var komin yfir tvítugt.  Fór nú bara til að hitta pabba en ferðin var nú nokkuð stytt þegar e-ð fólk á tjaldsvæðinu hans hringdi í neyðarlínuna til að kvarta undan HUNDINUM!!!!!  Hann var víst að gelta... ég spyr nú bara, hvað er fólk að gera í útilegu úti á landi, á samkomu sem er fræg unglingasamkoma og í öðru hverju tjaldi allt í kring voru klikkuð partý með gítar og söng og ölæði og allt brjálað, unglingar öskrandi og enginn svefnfriður neinstaðar í nágrenninu....... og fólk sér sér ástæðu til að hringja í neyðarlínuna útaf hundi!!!!!!!!!!! Klukkan var líka nota bene 12:00.. Ég hefði kannski skilið þetta ef klukkan væri að verða 5 eða 6 um morguninn og allir orðnir þreyttir! Svo þegar ég kom uppá tjaldsvæðið ( sem var líka í þokkabót við miðbæinn) heyrðist ekki múkk í hundinum og hann sat bara í aftursætinu. Svo heyri ég út undan mér fólkið í tjaldinu sem hafði hringt í neyðarlínuna blóta mér í sand og ösku og kallaði ókvæðisorð að mér.......

Ég spyr nú bara.........  hefði ég verið með ungabarn sem hefði verið grátandi hefðu þau þá líka hringt í neyðarlínuna til að kvarta undan því?????................... Ég meina hundurinn var inni í bíl með allar rúður lokaðar og ég var ekki búin að vera í burtu nema kannski mesta lagi 15 mínútur.......oooooog líka hvað í ósköpunum hefði lögreglan átt að gera í málinu??? Brjótast inn í bílinn og sprauta hundinn eða hvað?


AFMÆLI..... og pirri-pirr!

Jæja vinir nær og fjær þá fer að líða að því að ég fari að halda uppá stærsta og merkilegasta dag ársins... afmælið mitt, sem er á þeim alflottasta degi ársins......19. júlí... en þar sem ég er að vinna þá er búið að ákveða( í samráði við Kötu.. :)  að halda það þann 15. í staðinn sem er næsti laugardagur... og það er bara öllum boðið! Er ekki alveg búin að ákveða hvað verður gert en það verður pottþétt e-ð alveg ótrúlega skemmtilegtHlæjandi eins og mín er von og vísaUllandi... hver man ekki eftir tvítugs afmælinu mínu???.... alveg megas stuð....  ætlunin er að gera betur núna!... þið sem vitið að ykkur er boðið endilega látið vita ef þig komist ekki....   ætlunin er að þetta verði skemmtilegasti dagurinn á árinu. Ég er búin að leggja inn beiðni um gott veður... man ekki eftir einum einasta afmælisdegi þar sem var vont veður. Allavegna takið daginn frá Koss Ef þið verðið í góðum fílíng og skemmtilegum fötum þá er aldrei að vita nema að ég splæsi á vín og kannski mat... Hissa

Er annars á leiðinni á Ólafsvík eftir vinnu.. sem er reyndar ekki fyrr en eftir kl.22:00 enda er fjörið rétt að byrja þá. Ég og Ottó ætlum að hella í okkur :) Gunni er á vakt þar alla helgina svo er aldrei að vita nema maður heilsi uppá pabba sem er staddur þarna með frú og börn.

Sportfræðsla

 Ég framkvæmdi ljótan glæp í morgun................... gegn bakinu mínu! Fór út að skokka ætlaði að skokka í tuttugu mínútur í fjórum hollum.... svo var bara svo helvíti hvasst að ég ákvað að taka þetta bara í einum rykk!!!!!!!! Fór illa að ráði mínu... og er að gjalda fyrir það núna! Það er víst erfitt að kenna gömlum hundi að sitja og sama á víst við um mig..... virðist aldrei ætla að læra af mistökum mínum!

 Var að hugsa um daginn... af hverju í ósköpunum hefur aldrei verið svona fræðslumyndband í sjónvarpinu fyrir íþróttamenn: Hvernig á að forðast íþróttameiðsl, meðhöndlun og bati. Svona eins og óhöpp í umferðinni... eða snjóflóðavarnir... eða slys á heimilinu! Það væri fræðsla sem gæti alveg actually komið e-m að notum. Er að spá í að gera e-ð svona þegar ég er útskrifuð úr sjúkraþjálfun. Það má enginn stela þessari hugmynd!!!!!  Held að það væri alveg tilvalið að sýna þetta á RÚV á eftir helgarsportinu. Gæti verið sponsorað af Lyfju eða actavis. Ég er samt ábyggilega ekki að finna upp hjólið í þeim efnum en e-n veginn verður að koma þessu til almennings!!!!

Var að hugsa þetta um daginn þegar ég fór að hugleiða hversu margt sem ég er búin að læra í skólanum sem ég hefði viljað vita fyrir nokkrum árum... t.d. þegar maður var 16 ára og æfði eins og brjálæðingur og eyðilagði allt sem hægt er að eyðileggja í líkamanum og ég er ennþá að borga fyrir það í dag....... Held að íþróttafólk viti ekki almennilega hvað það er hægt að fyrirbyggja mörg meiðsli með réttri þjálfun. Held að það sé líka ótrúlega mikill skortur á fræðsu fyrir þjálfara um öll svona meiðsli, einkenni og hversu mikið álag er hæfilegt fyrir ungt fólk í íþróttum. Ég held að það eigi til að gleymast soldið þegar fólk er efnilegt og tilbúið að leggja mikið á sig til að vera best hvað er hæfilegt álag fyrir aldur þeirra! Ég verð svo reið alltaf þegar ég hugsa um þetta af því að í svona 85% tilvika í mínum meiðslum hefði verið hægt að koma í veg fyrir það mjög snemma hefði þjálfarinn minn vitað hvað væri í gangi og getað þekkt byrjunareinkennin. Það er e-ð sem maður á ekki að læra af biturri reynslu. Ég er náttúrulega ekki að taka ábyrgðina af sjálfri mér en hvað veit maður þegar maður er ákafur og ætlar sér stóra hluti! Ég þoli líka ekki allt þetta tal um að afreksíþróttafólk sé fólkið sem gerði aukaæfingar og lagði extra mikið á sig...... stundum er bara allt þetta extra óþarfi og beinlínis hættulegt og því má ekki gleyma! Það á að gera ráð fyrir því að krakkar taki þetta fólk sér til fyrirmyndar og geri allt sem það segir að sé nauðsynlegt til að ná árangri. Þið getið rétt svo ímyndað ykkur ef að Eiður Smári myndi segja í viðtali að til þess að ná árangri í fótbolta þyrfti maður að æfa að minnsta kosti 6 tíma á dag af áköfum æfingum. Allir pollar eldri en sex ára myndu taka sér þetta til fyrirmyndar og fara eftir þessu.....

Svo ég sleppi mér nú alveg í pirringnum!

 

P.s. Björn Ásgeir þú ert sætastur Koss

Ætla annars að reyna að skella inn skemmtilegri mynd af mér og Kolbrúnu í góðum fíling á Spáni

 

 


_seatour_users_kristin_my_documents_my_pictures_anna_h.jpg

Are we there yet......?

Jæja þá er ég komin aftur á Hólminn... verð að segja að það er bara alveg ágætt! Reykjavík er stórlega ofmetin.. maður gerir sér ekki grein fyrir því fyrr en maður fer aðeins út fyrir hana. Það er alveg yndislega frábært að vera í rólegheitunum úti á landi. Við Gunni erum að spá í að fara að veiða í kvöld eftir vinnu... svona um miðnætti! Þetta er e-ð sem maður hefði aldrei gert byggjum við í Reykjavík. Annars er Gunni að fá dellu fyrir öllu núna... búinn að vera að spá í að fá sér snjósleða, sjókött, nýja byssu, veiðistöng og e-u fullt fleiru... ég sagði hinsvegar stopp um daginn þegar hann var farinn að spá í að fá sér hest!!...  Er fullviss um að það hefði ekki alveg gengið! Stundum hugsar hann hlutina ekki til enda í þessum hugsanaóveðrum (i.e. brain-storming) sínum! Þá getur nú verið gott að eiga mig að...

 Annars gerðist ekki margt í Reykjavík.. systir hans Gunna ekki ennþá búin að eiga... við eiginlega vöktuðum hana á meðan við vorum í bænum... minnti mig á Bart Simpson... are we there yet, are we there yet, are we there yet, are we there yet, are we there yet, are we there yet, are we there yet, are we there yet!

Ég ætlaði líka að kaupa mér e-r rosa flott föt... það er óhætt að segja að ég hafi ekki fundið mér neitt! Keypti mér reyndar nýja hlaupaskó af bráðri nauðsyn þar sem my monster truck littla tá var alveg búin að brjóta sér leið í gegnum skóna mína! Sé fram á að þurfa að endurnýja fataskápinn erlendis í haust...

 Fór líka í sjúkraþjálfun... fékk leyfi til að prófa mig áfram í skokkinu... varð aðeins of gráðug og skokkaði í 10 mín..... hægri rasskinnin á mér var greinilega ekki sátt við það og fór í kleinu... þannig að skokkið verður víst að bíða aðeins lengur! Óþolandi samt hvernig svona sjúkraþjálfarar tala... já bara ef þú treystir þér til þess... já þú verður bara að finna það sjálf... ég get bara ekki sagt neitt um það... þú verður bara að spila það eftir því hvernig þér líður........ og so on! Ég ætla ekki að vera svona sjúkraþjálfari!... ég ætla bara að gefa hrein svör... já eða nei! Annað hvort má maður gera hlutina eða ekki! Fólk sem er búið að vera ofvirkt alla ævi og alltaf e-ð að er hætt að skynja sársauka eins og aðrir... það er bara staðreynd!

 Annars er ég að vinna á 2-10 vöktum núna sem er algjör moxxxx fuxxxx! Það var huges hópur af frönskum og þýskum túristum hérna áðan og ég alein í búllunni... reyndi af veikum mætti að tala frönsku... skildi þó reyndar merkilega mikið af ruglinu í þeim.. en það er samt ótrúlegt hvað maður er fljótur að gleyma tungumálakunnáttunni sinni... gat ómögulega munað hvað kanína var á frönsku þannig að ég fór bara í actionary hérna á miðju gólfinu og fór að hoppa og leika kanínu... þau héldu reyndar að ég væri hundur fyrst en það komst samt til skila :) Ég er samt líka alltaf þannig að það er annaðhvort bara ítalskan eða franskan sem hefur yfirhöndina og þessa stundina er það ítalskan.... þannig að alltaf ef ég ætla að segja e-ð á frönsku þá get ég ómögulega hætt að hugsa á ítölsku!

Kveð annars í bili... og minni á færeyska daga á Ólafsvík næstu helgi ef e-m langar... ég er game í djamm ef e-r vill :)


Stykkishólmspósturinn..

Gleðilega þjóðhátíð vinir nær og fjær... 

Skrítið að í gær þegar e-r sagði í sjónvarpinu ".......og gleðilega þjáðhátíð"...  þá hugsaði ég: Þessi er nú e-ð rugl... það er engin þjóðhátíð í dag... það er 17.júní....  Þögull sem gröfin

Ég er annars bara í vinnunni núna... það er nú víst bara þannig að þeir sem vinna í ferðaþjónustunni fá aldrei frí. Við sitjum fjögur hérna á skrifstofunni og borum í nef... það er ekkert að gera! Svo á ég bara eftir að vinna í einn dag og þá er ég komin í vikufrí... þetta er búið að vera algjör drullupollur að vinna svona tvær vikur samfleytt... framkvæmdagleðin er komin niður við frostamark og ef ég er beðin um að gera e-ð þá hvæsi ég bara á viðkomandi. Ég fer líka að verða fegin að komast í sjúkraþjálfun.. er búin að vera sæmileg svona almennt séð... er að spá í að reyna pumpa kallinn í að fá að prófa að skokka og labba til skiptis. Athuga hvað hann segir með það, þó að ég sé reyndar nokkuð viss um að hann leyfi það ekki!

Var að hugsa til baka um daginn og þá fattaði ég að ég er ekki búin að skokka í að verða fimm mánuði núna... sem er alveg tveim mánuðum lengra en þegar ég t.d. álagsbraut sköflunginn á mér... þannig að þetta er alveg lengsta skokkpása LÍFS MÍNS..... Enda er ég að verða komin með alveg nóg af þessari vitleysu.. er farin að velta því fyrir mér hvort að það sé virkilega þess virði að vera í íþróttum ef maður endar sem e-r krypplingur um þrítugt... Í HJÓLASTÓL! Það verður samt alltaf þá aftan í hausnum á manni hvað ef ég hefði haldið áfram.... hvað hefði maður getað afrekað! Fyrir utan það líka hvað þetta er skemmtilegt. Allavegna þá verða frjálsarnar að bíða um sinn á meðan bakið er að gróa. Ég var líka að fatta að ég hef ekki náð heilu tímabili síðan ég var fimmtán ára....geri aðrir betur!

Ég fer að verða soldið spennt fyrir því að byrja í skólanum... er komin með nóg af því að vinna endalaust! Svo er líka alveg ótrúlegt hvernig mér hefur tekist að eignast svo til engan pening???? Ég bara skil þetta ekki!!!!!!


Byssuóður veðurfréttamaður.....

Þetta sumar er búið að vera alveg úber lélegt... rigning uppá hvern einasta dag. Ég bara man ekki eftir öðru eins. Vá hvað ég vorkenni greyið unglingunum að þurfa að vinna úti í þessu veðri. Ég svo sem þekki það af eigin raun.... vann í mörg sumur í kirkjugarðinum. En þar sem að sálarástand mitt er eitthvað svo nátengt veðrinu núna þá er ég stanslaust þreytt. Ég bara get ekki vaknað... ég snooza alltaf svona fimm sinnum... og bíð alltaf alveg fram á seinustu stundu með að fara á fætur og er þar af leiðandi alltaf frekar úldin og í illa samsettum fötum og með úfið hár... og ég sem í bjartsýni minni tók eiginlega bara með mér e-r sumarföt hingað... hélt að sumarið væri nú á næsta leyti.... en nei....

Þar af leiðandi er ég að finna sjálfa mig í undarlegum aðstæðum.. ég er komin með þráhyggju fyrir því að skoða veðurfréttirnar!!!! Ég hugsa að ég fari svona að meðaltali 10 sinnum á dag að skoða mbl.is og vedur.is... alltaf með bjartsýnina að vopni.. nú skal það sko gerast... nú kemur sól! En það bara gerist ekki og í hvert skipti missi ég alveg endanlega vonina á því að það komi e-n tímann e-ð sumar hérna.... hvað ef að núna er bara sumarið þar sem að enginn golfstraumur kemur til Íslands og það verður bara endalaus lægð og suðvestanátt og strekkingur með vaxandi vindi... og bara rigning í allt sumar og svo kemur bara vetur í ágúst..... maður veit aldrei.....það gæti alveg gerst! 

Ég var annars að hugsa í gær hvað það er ofboðslega langt síðan það var e-ð almennilegt eldgos á Íslandi.. það er ekkert fútt í þessu hjá okkur! Það væri soldið spennó ef Hekla kæmi bara með risagos eða Katla eða e-r af þessum stóru fjöllum... og allir að koma til Íslands til að skoða og mega action í gangi.... ekki það að ég vilji að e-r meiði sig eða svoleiðis.. ég held að það sé bara kominn tími til að Ísland fari að standa undir nafni og geri e-ð til að koma okkur í fréttirnar erlendis fyrir e-ð annað en fjármálabrask.

 Ég er annars alltaf að gera mitt besta til að skoða umhverfið á Snæfellsnesinu.. nafla alheimsins.. menningarsvæðið.. eins og yfirmaður minn segir. Fórum í Kolgrafarfjörð í gærkvöldi.. Gunni plataði mig til þess að prófa að skjóta... held ég geri það varla aftur. Ég datt næstum því aftur þegar byssan þrykktist í öxlina á mér... fattaði svo ekki að maður má víst ekki sleppa byssunni við svoleiðis högg... Gunni varð hræddur um að ég mundi óvart skjóta hann. Það gerðist nú samt sem betur fer ekki :) Fékk líka þessa svakalegu hellu fyrir eyrun.. var með hana í dágóðan tíma á eftir! Við skelltum okkur svo að labba upp að e-m foss þarna í firðinum. Ottó greyið vældi eins og kerling.. þorði varla yfir.. komum honum þó á endanum, kannski ekki skrítið.... strákurinn að synda í fyrsta skipti. Ég var rosa stolt af honum, gæti trúað að þetta sé svipuð tilfinning og að sjá barnið sitt labba í fyrsta skipti... mjög tilfinningaþrungið! Við ákváðum svo að henda honum ofan í e-n sæmilega lítinn hyl þarna á bakaleiðinni... héldum að hann yrði kannski hræddur en strákurinn bara stóð kyrr.. held að hann hafi kannski haldið að hann ætti að fara í bað þarna! Æ hann er e-ð svo vitlaus greyið...  Létum hann svo hlaupa á eftir bílnum dágóðan spotta eftir gönguna... litla greyið var farið að froðufella eins og óður maður og það var farið að blæða úr loppunum á honum eftir það Skömmustulegur litla greyið mitt var alveg búið á því.. þegar hann kom heim borðaði hann tvær dollur af hundamat á innan við tveim mínútum... hlýtur að vera e-s konar met hjá hundi. Svalur


Heilhveitis ananas

Jæja.. þá fer að styttast í bæjarrúnt. Enda kominn tími til.. ég er farin að sakna Reykjavíkur!  Það er eiginlega soldið skrítið að mér líður eiginlega frekar eins og sé í útlöndum heldur en á Íslandi þar sem ég er umkringd útlendingum allan daginn og er alltaf að skrifa e-mail á ensku. Þannig að koma heim til mömmu er eins og að koma heim frá útlöndum. .. sem er alltaf ánægjulegt. Það er nú samt ótrúlegt hvað maður hittir mikið af fólki hérna.. eins og bara í gær þá var kærasti hennar Eyrúnar hérna og í seinustu viku var öll strollan af ættingjum mínum hérna og ég er alltaf að hitta e-ð fólk sem ég þekki. Ég er annars frekar löt að æfa hérna... en fékk smá áminningu í gær þegar tvær konur á skrifstofunni hjá mér spurðu mig hvort ég væri nokkuð ólétt....... Ég fór í gymmið á eftir og tók vel á því svo ekki sé meira sagt. !!!??! Ég ætla líka að taka World class með trompi þessa viku sem ég verð í bænum ef e-r vill koma með?..

Ég er annars farin að pæla í að kíkja e-ð út í haust... ef sumarið verður svona áfram þá er ekkert vit í því að hanga hérna áfram.. ef e-r rekst á e-ð gott tilboð þá er ég til!!!?!!.. Ég er annars með frekar limited budget.. ef maður á að kaupa e-a íbúð í haust þá er ekkert vit í því að fara í rándýra utanlandsferð.. því miður... Taíland verður bara að bíða lengur eftir mér!

Ottó er annars bara hress... fyrir utan það að hann var e-ð reiður við mig um daginn af því ég skildi hann eftir einan heima soldið lengi og drengurinn tók sig til og meig á alla skóna mína..... sem voru bæ the wei... uppi í skógrind! Hann var líka soldið furðulegur í nótt.. vaknaði með andköfum svona um 4 hljóp uppá eldhúsborð og byrjaði að gelta eins og óður maður... veit ekki alveg hvað hljóp í hann??!!!? Hann er samt töffari...

Ég er með góða reglu sem mætur kennari í MR kenndi mér.. í staðinn fyrir að segja helvítis andskotans...þá segir maður heilhveitis ananas... góð regla ef maður er með krakka nálægt :)

Annars velkomin heim Berglind ef þú sérð þetta :)


Sveitakonan

Jæja..  félagar sunnan og norðan Vatnaleiðar...ég ætla að gera heiðarlega tilraun til þess að halda úti auglýsingasíðu um líf mitt... og þá sérstaklega fyrir þá sem eru sunnan hennar. Fyrir þá sem ekki vita þá er Fífí flutt um stundarsakir vestur á Stykkishólm. Þeir sem eiga leið þar um eru ávallt velkomnir í kaffi og með því... Fífí er að vinna á Sæferðum..... Sæferðir eru með báta... Fífí verður mjög sjóveik... Fífí líkar ekki að sigla á báta. Samt þarf Fífí að sigla stundum í vinnunni... Fífí fer stundum í gymmið... í gymminu á Stykkishólmi eru 8 tæki... þar sem Fífí er vön að æfa í Reykjavík eru 8000 tæki...  Annars er fínt að vera á Stykkishólmi.. Fífí getur farið daglega á kajak, á hestbak, golf, fuglaskoðunarferðir, sund og fjallgöngur. Fífí á hund sem heitir Ottó og er með henni á Stykkishólmi. Hann er algjör pjakkur og nýbúinn að fá eistu þannig að honum finnst hann algjör foli og strýkur stundum  til að spjalla við píurnar í bænum. Ottó finnst líka gaman á Stykkishólmi. Fífí á vindsæng og kodda ef vinkonur hennar vilja koma í heimsókn.

« Fyrri síða

Höfundur

Anna Heiða Gunnarsdóttir
Hér er stuð, hér er fjör... hvað er um að vera?
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband