Leita í fréttum mbl.is

Skandall hjá Samfylkingu að missa heilbrigðisráðuneytið

Jahh hérna segi ég nú bara. Með fullri virðingu fyrir Guðlaugi Þór og hans störfum þá tel ég það mikið óhappaskref hjá Samfylkingunni að láta heilbrigðisráðuneytið sér úr greipum renna. Ég fékk það á tilfinninguna í viðtalinu að heilbigðisráðuneytið sé ekki óskastaða Guðlaugs og því sísti staðurinn sem hann ætti að sækja inn á. Ég trúi bara ekki að maður sem hefur enga menntun á sviði heilbrigðismála né áhuga eigi eftir að geta fært eitthvað gott fram fyrir það fólk sem þarf á aðstoð heilbrigðisþjónustu að halda. Sif Friðleifsdóttir var þó allavegna menntaður sjúkraþjálfari þó að hún hafi nú ekki staðið sig eins vel og hún hefði getað.

Ég held að það fyrsta sem Guðlaugur Þór ætti að gera væri að fara inn á sjúkrahúsin, stofurnar, samtökin og bandalögin og ræða við bæði starfsfólkið og sjúklingana um hvað þarf að laga. Það er fólkið sem hefur reynsluna af því hvernig kerfið er að virka og hvaða umbætur er hægt að gera. Fyrsta skrefið væri að hætta við þetta blessaða hátæknisjúkrahús og gera frekar betur við þessi ágætu vannærðu sjúkrahús sem eru til nú þegar. Ég hef ekki hitt einn einasta heilbrigðisstarfsmann sem telur að þetta sjúkrahús leysi þann vanda.... Það þýðir ekkert að opna flott sjúkrahús með flottum græjum ef enginn er starfsmaðurinn sem vill vinna þar á þeim launum sem eru í boði núna. Ég get alveg sagt fyrir mitt leyti að sem verðandi sjúkraþjálfari þá er það ekki til í myndinni að ég fari að starfa á ríkisreknum spítala eða heimili að loknu námi. Ég held að aðrir skólafélagar mínir séu sammála mér í því.

Það er þó bót í máli hér að almannatryggingar felast hér á eftir undir félagsmálaráðuneytið sem nú verður stjórnað af Jóhönnu Sigurðardóttur sem ég vona að gera ærlega uppstokkun á svo að öryrkjar og aðrir sem eru stórneytendur að heilbrigðisþjónustu fái loksins tækifæri á að vinna sig út úr þeim sjúkdómum, fátækt og öðru sem að þeim kemur. Að lokum vona ég að báðir þessir ráðherrar gefi sér tíma til að heimsækja hjúkrunarheimilið Sóltún og noti það sem viðmið fyrir það hvernig á að standa að hjúkrun og aðstöðu fyrir eldri borgara á landinu.


mbl.is Guðlaugur Þór: Hlakka til að takast á við verkefnið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mér þykir þú kræf að fullyrða um áhugaleysi Guðlaugs á heilbrigðisgeiranum út frá getgátum.

D (IP-tala skráð) 23.5.2007 kl. 09:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Anna Heiða Gunnarsdóttir
Hér er stuð, hér er fjör... hvað er um að vera?
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband